Fundargerð fundar stjórnar, varastjórnar og starfsnefndar KÍM haldinn á 1919 28. nóv. 2011

 

Mætt voru:

Arnþór Helgason, Edda Kristjánsdóttir, Skírnir Garðarsson, Sigrún Davíðs, Stefán Ólafsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Egill Eyþórsson, Guðrún M. Þrastardóttir, Kristján Guðlaugsson, Þorgerður A. Björnsdóttir, Friðjón Guðjohnsen, Ágúst Hallgrímsson, Katrín Ákadóttir, Urður A. Björnsdóttir.

Mál. 1.skipting embætta.

Embættaskipan óbreytt; Arnþór formaður, Edda gjaldkeri og Skírnir ritari.

Mál 2. Ferðasaga sendinefndar til Kína okt. 2011.

Fulltrúarnir Arnþór , Edda og Sigrún sögðu frá ferðinni, einnig voru í henni Kristján Jónsson og Smári Baldursson.

Rætt var um: Hugsanlega brúðuleikhús heimsókn frá Kína. Hugsanlega heimsókn rokkhljómsveitar, hugsanlega sýningu listmuna og samstarf við sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

Mál 3. Nefndarstörf:

Afmælisnefndin styrkist með 4 nýjum félögum

Stefán, Katrín, Urður og þorgerður.

Heimasíðunefndin lagði fram upplýsingar um framvindu starfsins.

Allnokkrar umræður spunnust um heimasíðuna, svo og bloggið.

Ákveðið var að KÍM gætti hlutleysis, ályktaði ekki né tjáði sig um einstök dægurmál, en frjálst er félagsmönnum að blogga, en þá einvörðungu í eigin nafni.

Mál 4. Önnur mál.

Kynnt var bréf kínversks barnakórs og hugmyndir um tengsl kynnt.

Ákveðið var að halda nýárshátíð seinnipartinn í janúar 2012, hafa kvöldverð og skemmtiatriði, nánari útfærsla er í höndum nefndar sem sett var á laggirnar, í henni eru:

Ágúst, Urður, Stefán og Arnþór, sem verður tengiliður yfir til Kínversk-íslenska verslunarráðsins.

 

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl 18.30

Skírnir Garðarsson ritari