Um KÍM

Kínversk-íslenska menningarfélagið KÍM  var stofnað í Reykjavík 20. október 1953. 

Samkvæmt lögum félagsins stuðlar það að samskiptum Íslendinga og Kínverja á sviði menningar og lista.  Félagið er óháð stjórnvöldum bæði á Íslandi og í Kína og er ópólitísk samtök einstaklinga sem áhuga hafa á menningarsamskiptum Kínverja og Íslendinga.

Kím hefur frá upphafi stuðlað að gagnkvæmri kynningu á menningu Íslands og Kína. Félagið hefur boðið hingað fjölda lista- og fræðimanna og um 25 ára skeið var félagið helsti vettvangur samskipta Íslendinga og Kínverja.

Félagið hefur átt samstarf við stjórnvöld, stofnanir, einstaklinga, fyrirtæki og ýmis samtök hér á landi um ýmis mál sem snerta samskipti þjóðanna. Kínversk-íslenska menningarfélagið er á meðal fjölmennustu menningarfélaga í Norður-Evrópu, sem eiga samskipti við Kína.

Innan félagsins hefur byggst upp mjög mikil þekking á kínversku þjóðfélagi og er iðulega leitað til félagsins um ýmis mál.