Kínverski þjóðfáninn Merki KÍM

Íslenski þjóðfáninn

Fréttasafn KÍM

Austrið er rautt, kínversk kvikmynd frá 1964

Sýningartími er um 100 mínútur.  Kveikja má á kvikmyndinni hvenær sem er. Mun betri myndgæði af kvikmyndinni eru á þessari krækju.

Aðalfundarboð KÍM 2008 


Aðalfundur Kínversk-íslenska menningarfélagsins (KÍM) verður haldinn þriðjudaginn 28. október kl. 17:30 í sal Bókasafns Kópavogs, Hamraborg 6, Kópavogi.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, ásamt tillögu um breytingu á lögum félagsins að því er snertir árstíma aðalfundar, sbr. nánar hér fyrir neðan.
Á fundinum verður kynnt mjög áhugaverð ný kvikmynd Lýðs Árnasonar læknis á Flateyri með svipmyndum úr kínversku þjóðlífi : Útrás eldri borgara – kínverski draumurinn.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Að loknum aðalfundi verður haldið á veitingastaðinn Kínahofið, Nýbýlavegi 20 og snæddur kvöldverður. Máltíðin kostar 1390 kr.
Fólk er vinsamlegast beðið að tilkynna komu sína í málsverðinn í síma 561 1703, 897 3766 eða með tölvupósti á netfangið kim@kim.is, fyrir kl. 22 sunnudaginn 26. október.

Lagabreytingar

Á stjórnarfundi 14. okt. sl. var ákveðið að leggja til þá breytingu á 8. gr. laga félagsins að aðalfundur verði framvegis haldinn í októbermánuði. Í samræmi við það verði gerð sú breyting á 12. gr. að tillögur til lagabreytinga skuli berast stjórn félagsins fyrir 20. september ár hvert.

Lög félagsins eru á heimasíðu þess, http://kim.is

Með félagskveðju,

            Stjórn KÍM


Ráðstefna um Mao Zedong - 毛泽东 - á Íslandi

Alþjóðlegt málþing um tímabil Mao Zedong í Kína 1949 - 1976
11. nóvember 2006, kl. 9:30 – 17:00
Staður: Hátíðasalur Háskóla Íslands. 

Asíuver Íslands og Kínversk-íslenska menningarfélagið efndu til alþjóðlegs málþings um tímabil Mao Zedong í Kína hinn 11. nóvember 2006, en 9. september það ár voru liðin 30 ár frá andláti hans. Tilgangur málþingsins var að hefja hlutlæga umræðu um þetta tímabil kínverskrar nútímasögu og varpa ljósi á ýmsa þætti í sögu þess.(Nánar)

Mao Zedong - 毛泽东 - féll frá fyrir 30 árum

Mao lýsir yfir stofnun Kínverska alþýðulýðveldisnsHér er að finna ítarlega vefsíðu sem Kínverksa alþjóðaútvarpið setti saman í tilefni þess að 9. september 2006 voru liðin 30 ár frá andláti Mao Zedong helsta foringja Kínverja á síðustu öld.  Á vefsíðunni sem er á ensku er meðal annars að finna minningar dóttur hans og dótturdóttur um föður og afa. (Nánar)

Kínversk hirðtónlist

Kínversk hirðtónlist var flutt í Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 6. sept. kl. 20:00. (Nánar)

Aðalfundur KÍM 2006

Aðalfundur Kínversk-íslenska menningarfélagsins var haldinn þriðjudaginn 21. mars 2006 á veitingastaðnum Dong Huang, Reykjavíkurvegi 68 í Hafnarfirði. Dagskrá fundar var hefðbundin aðalfundarstörf.  Á fundium var kjörinn ný stjórn og er Ólafur Egilsson sendiherra nýr formaður stjórnar. (Nánar)

Ferð til Tíbets

Dagana 1. – 15. ágúst nk. efnir Kínversk-íslenska menningarfélagið til ferðar til Tíbets í samvinnu við ferðaskrifstofuna Langferðir. (Nánar)

Ár Rauða eld hundsins (2006)

Bætt inn hinn 26. janúar 2006.
Kínversk-íslenska menningarfélagið og Félag Kínverja á Íslandi efna til drekadans niður Laugaveginn laugardaginn 28. janúar n.k. í tilefni kínvrska nýarsins sem hefst sunnudaginn 29. janúar klukkan 14:15 að íslenskum tíma samkvæmt hinu forna kínverska tímatali.  Lesa fréttatilkynniningu, krækja hér.

Lín Hua látinn

Síðan var fyrst ofin hinn 10. október 1997, endurlífguð 22. mars 2004 og endurhönnuð 12. mars 2006. Emil Bóasson vefari

Ókeypis Java frá The JavaScript Source