Kínverski þjóðfáninn Merki KÍM

Íslenski þjóðfáninn

Ár músarinnar - Ár rottunnar

Klippimynd af kínverskri mús eða rottu

Ár músarinnar eða ár rottunnar

Ár músarinnar eða rottunnar er samkvæmt kínverska dýrahringnum á 12 ára fresti. Það er ár mikillar endurnýjunar, erfiðis og athafna. Tilvalið er að hefjast handa við ný verkefni, ráða sig í vinnu eða ganga í hjónaband. Fyrirtæki, sem stofnuð eru á ári rottunnar, skila yfirleitt ekki skjótum arði. Sé hins vegar vel
staðið að undirbúningi þeirra skilar ágóðinn sér ríkulega síðar.

Sýndu þolinmæði og nýttu öll tækifæri sem gefast.

Þeir, sem eru fæddir á ári rottunnar, eru sagðir  rökfastir raunhyggjumenn, kænir eða jafnvel slægir, aðlaðandi, metnaðargjarnir og hugmyndaríkir. Nánari lýsing á einkennum hvers og eins fer eftir stöðu himintunglanna þegar hann eða hún fæddist.

Kínverjar bera virðingu fyrir þeim sem eru fæddir á ári rottunnar vegna iðjusemi þeirra, hugrekkis  og iðjusemi. Rottufólkið ber hag fjölskyldunnar fyrir brjósti, er vel gefið og félagslynt. Það víkur sér ekki undan ábyrgð og bregst fljótt við umhverfi sínu og aðstæðum.

Síðan var fyrst ofin hinn 10. október 1997, endurlífguð 22. mars 2004 og endurhönnuð 12. mars 2006. Emil Bóasson vefari

Ókeypis Java frá The JavaScript Source