1. gr.
Félagið heitir Kínversk-íslenska
menningarfélagið. Heimili þess og varnarþing er
í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að koma á og halda
uppi menningarlegu samstarfi milli Íslands og Kína, og
veita fræðslu um menningu,
þjóðfélagshætti og vísindi
í Kína og stuðla að því að kynna
þar íslenska menningu, bókmenntir og listir.
3. gr.
Þessum tilgangi vill félagið ná
meðal annars með því:
að greiða fyrir samskiptum milli menntastofnana,
félaga og einstaklinga í báðum löndum og
afla heimilda um stjórnmál,
þjóðfélagshætti og menningar- og
vísindastarfsemi í Kína;
að gangast fyrir fræðslu um Kína með
fyrirlestrum, kvikmyndasýningum, öflun bóka og
tímarita, myndsýningum, flutningi tónlistar og
annarri upplýsingastarfsemi;
að koma á framfæri við útvarp,
blöð og tímarit gagnkvæmri kynningu á
menningu Íslands og Kína og nýjungum á
sviði vísinda og lista;
að stuðla á hvern annan hátt að
vinsamlegu samstarfi Íslendinga og Kínverja.
4. gr.
Félagsmaður getur hver sá orðið, sem
vill starfa í samræmi við stefnu og tilgang
félagsins og greiða árgjald sitt til félagsins.
5. gr.
Til inngöngu í félagið þarf
samþykki stjórnar.
6. gr.
Árgjald félagsins skal ákveða
á aðalfundi.
7. gr.
Vanræki félagsmaður tvö ár
eða lengur að greiða árgjald sitt til
félagsins telst hann ekki lengur meðlimur þess. Einnig
má víkja manni úr félaginu samkvæmt
ákvörðun stjórnarinnar, ef hann gerist brotlegur
við stefnu þess og tilgang. Ákvörðun
stjórnarinnar verður þó að bera undir
almennan félagsfund til samþykktar.
8. gr.
Félagið skal halda aðalfund október
mánuði ár
hvert og er hann lögmætur ef boðað er til hans
með fjögurra daga fyrirvara svo sannanlegt sé. Á
aðalfundi skal kjósa 5 menn í stjórn
félagsins. Formaður og varaformaður skulu kosnir
sérstaklega. Í varastjórn skulu kosnir
þrír menn. Ennfremur skal kjósa tvo
endurskoðendur og einn til vara. Svo og skal kjósa í
nefndir á vegum félagsins. Kosning fer fram skriflega, ef
þess er óskað, að fram komnum uppástungum.
9. gr.
Stjórnin skiptir að öðru leyti með
sér verkum. Hún hefur á hendi daglegar
framkvæmdir félagsins. Heimilt er henni að
ráða sér starfsmenn, ef ástæða
þykir til. Stjórn félagsins skuldbindur
félagið út á við. Stjórnarfundur er
lögmætur ef meirihluti stjórnar er á fundi.
10. gr.
Stjórnin kallar saman félagsfund þegar
hún telur þess þörf. Skylt er að kalla
saman félagsfund ef 25 félagsmenn hið minnsta
krefjast þess skriflega og greina ástæður. Til
félagsfunda skal boða á sama hátt og til
aðalfunda. Fundurinn er lögmætur ef hann er löglega
boðaður.
11. gr.
Stjórnin skal leggja fyrir aðalfund til
úrskuðar endurskoðaða reikninga félagsins
fyrir næsta almanaksár á undan. Hún gefur
einnig á aðalfundi skýrslu um störf
félagsins.
12. gr.
Samþykktum þessum verður aðeins breytt
á aðalfundi, enda greiði tveir þriðju
fundarmanna atkvæði með breytingum. Tillögur um
lagabreytingar skulu sendar stjórn félagsins eigi
síðar en 20. september.
13. gr.
Lög þessi voru þannig samþykkt á
stofnfundi félagsins 20. október 1953 með á
orðnum breytingum á aðalfundum 1957, 1975, 1977, 1978,
1982, 1990 og 2008.